Music World
 
Исполнители:
 
 
 
English versionSwitch to English 
Sálin Hans Jóns Míns




Тексты песен Sálin Hans Jóns Míns

Текст песни "Ævin er augnablik"


Ísinn er háll,
sleipur sem áll.
Fellur sá sem ekki nær að fóta sig.
Freistingin freistar
og fisléttur draumur er þinn.

Fáðu mér fé,
færðu mér auð.
Í staðinn skal ég breyta þér í svartan sauð.
Enginn er óhultur,
allir fá allskonar boð.

En þú skalt athuga vel þinn gang.
—Gefðu því gaum hvað er í húfi.
Athugaðu þinn gang,
—ævin er augnablik.
Athugaðu þinn gang.
—Gerðu það gott, en spáðu í spilin.
Athugaðu þinn gang,
—ævin er augnablik.

Galopnast oft
gleðinnar dyr.
Gáðu samt og gættu þín á góðum byr.
Freistingin feykir
og flýgur svo með þig á braut.

Fyrr en þú ferð
færi ég þér
örfá orð í nesti eins og vera ber:
Enginn er öruggur,
allt getur gengið á skjön.

комментарии публикуются при поддержке Disqus




© 2011 Music World. Все права сохранены.